Einar Már

Englar alheimsins á svið Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið hefur keypt rétt til þess að gera leikgerð upp úr Englum alheimsins, bók Einars Más Guðmundssonar.

Englar alheimsins er eitt þekktasta verk Einars Más, bókin hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og fyrir hana hlaut Einar Már bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1995. Eftir bókinni var gerð samnefnd kvikmynd sem hefur notið gífurlegra vinsælda.

Þorleifur Örn Arnarson og Símon Birgisson hafa verið fengnir til að skrifa leikgerðina eftir bókinni en Þorleifur mun leikstýra. Þannig að nú geta aðdáendur englanna byrjað að hlakka til að sjá þetta magnaða verk á fjölunum!




INNskráning

Nýskráning