Lýtalaus

Eins og þau segja: „Whoop, whoop!“ Ný bók eftir Tobbu

Sjónvarpsstirnið fjölhæfa og stórsnillingurinn Tobba Marinós kvað sér hljóðs með skutlubókinni Makalaus á síðasta ári og tók þá lesendur með trompi. Fólk á öllum aldri veltist um af hlátri og það ískraði víst í báðum kynjum. Hermt er einnig að tungutak landsmanna hafi tekið ákveðnum breytingum við að kynnast frasabanka aðalsöguhetjunnar, Lilju Sigurðardóttur. Við kætum því lönd og lýð með því að nú er sjálfstætt framhald Makalaus að koma út. Lýtalaus er ný skáldsaga eftir hina einu sönnu Tobbu, sjálfstætt framhald hinnar fyrri, og hún kemur út núna á föstudaginn. Þar segir enn af ástar- og tilvistarspeki Lilju og vinkvenna, en sögusviðið í nýju bókinni nær vel út fyrir höfuðborgarsvæðið – með notalegri viðkomu í Hveragerði. Fylgist með!

INNskráning

Nýskráning