Nú hafa þrjár strumpandi góðar bækur bæst við strumpasafnið. Í bókunum Geimstrumpur og Strumparnir og draugahöllin lenda strumparnir í skemmtilegum ævintýrum þar sem þeir hitta annars vegar slumpana sem búa í geimnum og hins vegar draugalega veru sem gerir þá alveg strumpaða. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og með auðlæsilegum texta sem hentar vel fyrir litla lestrarhesta.
Hvar er Gáfnastrumpur? er bók fyrir börn á öllum aldri en þar þurfa börnin að leita að Gáfnastrumpi og strumpa ýmislegt skemmtilegt á tólf líflegum myndum úr Strumpaþorpinu.
Þann 10. ágúst verður Strumpamyndin frumsýnd en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Undirbúið ykkur undir strumpasprengju og birgið ykkur upp af strumpandi lestri.