Rizzoli

Hasar á skjánum

Einn af sumarsmellunum þetta árið er spennusagan Skurðlæknirinn eftir hina bandarísku Tess Gerrittsen. Glöggir áhorfendur Stöðvar 2 hafa mögulega veitt því eftirtekt að þar er til sýninga þátttaröð byggð á bókinni sem heitir í höfuðið á aðalsöguhetjunum Rizzoli & Isles. Blóðug baksaga þátttanna er rakin í bókinni, þar afhjúpast meðal annars tengsl lögreglukonunnar Rizzoli við fjöldamorðingjann Hoyt (og þeirra samband er nú ekki beinlínis fyrir viðkvæma). Þættirnir um vinkonurnar Rizzoli og Isles eru sýndir í tæplega tuttugu löndum og njóta mikilla vinsælda.

INNskráning

Nýskráning