Danska forlagið Vandkunsten hefur fest sér útgáfuréttinn á ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Blóðhófni, og barnabókinni Garðinum. Þetta eru hvoru tveggja virtar verðlaunabækur en Blóðhófnir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2010 og Garðurinn Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010.
Garðurinn mun einnig koma út hjá þýska forlaginu Bloomsbury á næstunni en gengið var frá samningum við þá á dögunum. Þá verður Gerður gestur á alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Berlín í september. Gerður á einnig sögu í safnriti sem þýska forlagið DTV mun gefa út undir yfirskriftinni Niemandstal – Junge Literatur aus Island. Meðal annarra höfunda sagna þar verða Þórarinn Eldjárn, Auður Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Þórunn Valdimarsdóttir.
Þá berast fregnir þess að smásaga Gerðar Kristnýjar, „Ísfólkið“, muni koma út í safnritinu Best of European Literature sem Dalkey Archive gefur út í Bandaríkjunum.