Klifurveggur á Fiskislóð

Kort og klifur á Fiskislóðinni

Kortadagurinn var haldinn í lagerverslun Forlagsins í gær. Verslunin er stútfull af bókum af öllum gerðum og er með sérlega gott úrval af kortum og ferðahandbókum. Gestir fengu aðstoð við val á kortum og á meðan kíktu börnin á barnabækurnar. Allir fylltu magann af grilluðum pylsum og ungir ofurhugar klifruðu alla leið upp á topp á klifurveggnum sem gnæfði yfir allt.

INNskráning

Nýskráning