Skáldsagan Svörtuloft eftir Arnald Indriðason var kjörin glæpasaga ársins af dómnefnd blaðamanna hins virta fréttatímarits Vrij Nederland. Dómnefndin gaf bókinni fimm stjörnur af fimm mögulegum og sagði meðal annars að styrkur Arnaldar væri fólginn í samskiptum sagnapersónanna.
Viðurkenningin er afar eftirsótt því vinningsbókin fær mikla athygli í Hollandi. Querido, útgefandi Arnaldar í Hollandi hefur þurft að panta endurprentun nú þegar, en bókin kom út í maí og hefur þegar selst í meira en 17.000 eintökum.