Einar Már Guðmundsson

Bankastræti í Kaupmannahöfn

Einar Már Guðmundsson kynnir nýjustu bók sína, Bankastræti núll, í Jónshúsi fimmtudagskvöldið 16. júní.

Bankastræti núll hefur undirtitilinn „sögur úr veruleikanum“. Þar skrifar einn fremsti höfundur okkar Íslendinga um samband þjóðlífsins og menningarinnar, um ofurvald fjármálaheimsins, afþreyingu, reyfara, eldfjöll, banka og byltingar.

Á bókmenntakvöldinu verða léttar veitingar til sölu og einnig verður hægt að kaupa bókina á hagstæðu verði. Dagskráin hefst kl. 20 en húsið opnar kl. 19:15.

INNskráning

Nýskráning