Steinar Bragi

Konur vinsælastar í Póllandi

Skáldsaga Steinars Braga, Konur, var valin besta þýdda skáldsverks ársins 2010 af lesendum pólsku menningarsíðunni G-punkt.pl. Síða þessi er ein sú virtasta í Póllandi en þar er skrifað um leikhús, bókmenntir og tónlist. Ritstjórar síðunnar tilnefndu bækur í byrjun þessa árs en skáldsaga Steinars hlaut langflest atkvæði í netkosningu. Á síðunni kemur fram að lesendur hennar hældu sérstaklega hugrekki höfundarins og kraftmiklum texta og að þeir vonuðust til þess að kollegar Steinars Braga í Póllandi tækju sér hann til fyrirmyndar.


INNskráning

Nýskráning