Jóhannes úr Kötlum

Skáldasetur Jóhannesar

Við hvetjum alla til þessa að heimsækja skáldasetur Jóhannesar úr Kötlum á heimasíðunni www.johannes.is sem nú hefur verið opnað að nýju eftir lagfæringar og gagngerðar breytingar. Vefsetrið var fyrst opnað 4. nóvember 1999 á afmælisdegi skáldsins þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu hans. Þetta er þriðja breytingin sem gerð er frá upphafi og var afmælisdagur Hróðnýjar Einarsdóttur konu hans nú valinn sem opnunardagur. Hróðný lést árið 2009, 101 árs gömul.

Fyrir utan breytt útlit og nýtt fyrirkomulag eru helstu nýjungar þær, að nú er hægt að heyra tónlist sem samin hefur verið við ljóð Jóhannesar og eins er komin inn tónverkaskrá yfir lög við ljóð hans. Á sú skrá eftir að aukast mikið smátt og smátt.


INNskráning

Nýskráning