Kristjana Friðbjörnsdóttir

Til lukku!

Kristjana Friðbjörnsdóttir hlaut á dögunum barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bókina Flateyjarbréfin. Verðlaun fyrir þýðingu komu í hlut Böðvars Guðmundssonar sem þýddi smásagnasafnið Elskar mig – elskar mig ekki en það geymir smásögur sautján norræna rithöfunda, þar á meðal sögur eftir Jónínu Leósdóttur og Eirík Örn Norðdahl.

Í umsögn valnefndar um verðlaunabókina Flateyjarbréfin segir m.a.: „Flateyjarbréfin er bók sem kemur skemmtilega á óvart, hún er full af fróðleik og góðum boðskap. Jafnvel þótt maður klúðri hlutunum í hugsunarleysi má alltaf bæta fyrir brot sín. Söguna alla einkennir bæði hressilegur og léttur tónn.“

Í umsögn um þýðingu barnabókarinnar Elskar mig – elskar mig ekki segir m.a.: „Í kraftmiklum smásögum fá ungir lesendur innsýn í líf unglinga í átta norrænum löndum. Þýðandinn nær að fanga stíl og sérkenni hvers höfundar á látlausan hátt og er jafnframt óhræddur við að nota slangur og orðfæri sem flestum unglingum er tamt.“

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs afhenti síðdegis barnabókaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða að viðstöddum fjölmörgum gestum. Hún sagði m.a. í ávarpi sínu að „góðar barnabækur væru vinir og ferðafélagar allt lífið, enda gömul sannindi og ný að fátt væri börnum betri gjöf en góð saga.“

Meðal gesta við verðlaunaafhendinguna voru sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni sem lásu upp úr verðlaunabókunum og ungir hljóðfæraleikarar úr Tónskóla Sigursveins sem léku og sungu.

INNskráning

Nýskráning