Einar blaðamaður á sannarlega upp á pallborðið þessa dagana. Nú er fyrsta kiljuprentun sögunnar Morgunengill, sem kom út fyrir síðustu jól og fjallar um nýjustu ævintýri blaðamannsins knáa, á þrotum en önnur prentun er væntanleg. Þáttaröðin Tími nornarinnar, sem byggð er á samnefndri sögu Árna Þórarinssonar um fyrrgreindan Einar, spilar líkast til lykilrullu í vinsældum Morgunengils en hún er nú sýnd á RÚV og nýtur mikilla vinsælda.