Hinn umdeildi franski rithöfundur Michel Houellebecq verður gestur Listahátíðar í vor. Heimsókn hans er skipulögð í tilefni af 100 ára afmæli Alliance française á Íslandi. Houellebecq er afar fjölhæfur höfundur og hefur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, ljóð og ritgerðir en bækur hans hafa verið þýddar á um 40 tungumál.
Nýjasta skáldsaga hans Kortið og landsvæðið kom út september í fyrra. Bókin hlaut einróma lof og fyrir hana hlaut höfundurinn virtustu bókmenntaverðlaun Frakka, Prix Goncourt. Houellebecq þykir hafa komið með nýjan og ferskan tón inn í franskar samtímabókmenntir og er hann nú sá franski samtímahöfundur sem langmest er þýddur á erlend tungumál. Tvær skáldsagna hans, Öreindirnar og Áform, hafa komið út í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar.
Dagskrá í heiðurs Houellebecq verður haldin í Norræna húsinu þann 25. maí næstkomandi, en þar mun hann ræða um verk sín við Friðrik Rafnsson, þýðanda og Oddnýju Eir Ævarsdóttur, heimspeking og rithöfund, og svarar loks spurningum lesenda.
Í tilefni af heimsókninni býður Endurmenntun HÍ upp á snarpt námskeið um höfundinn og verk hans.