Ný íslensk smásaga verður frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins næstkomandi fimmtudag. IBBY samtökin á Íslandi skipuleggja þennan ofurlestur en alls munu 42.000 grunnskólanemar hlýða á söguna umræddan morgun. Höfundur sögunnar, Kristín Helga Gunnarsdóttir, mun aukinheldur lesa hana á Rás 1 á sama tíma, kl. 9.45, svo allir landsmenn geti einnig fylgst með.
Kristín skrifaði söguna að beiðni IBBY samtakanna á Íslandi en hún ber titilinn „Hörpuslag“. Þar segir af systkinum sem eru á leið í skólann – þar sem lesa á upp nýja íslenska smásögu fyrir alla grunnskólanema á Íslandi. Á þessari örstuttu leið þurfa þau að keppa við tímann, glíma við dauðann, takast á kaldrifjaðar hulduverur í klettahöll og færa miklar fórnir. Sagan spyr áleitinna spurninga um sjálfstæði, frjálsan vilja og virði þess sem manni er kærast.