Ævintýraunnendur athugið! Ný bók í seríunni um Eragon er væntanleg í haust. Fjórða bókin í geysivinsælum flokki Christophers Paolini hefur fengið enska heitið „Inheritance“ sem á íslensku gæti útlagst sem „Arfurinn“. Hermt er að þetta sé síðasta bókin um Eragon og drekann hans Safíru en sagan greinir frá lokabaráttu þeirra við illvirkjann Galbatorix!
Fylgist með!