Isabel Allende

Uppáhalds bók ófárra

Hin geysivinsæla skáldsaga Isabel Allende, Hús andanna, er nú loksins fáanleg að nýju. Bókin birtist fyrst á spænsku 1982, vakti strax mikla athygli, vann til fjölda verðlauna og var fljótlega þýdd á tugi tungumála. Rómuð íslensk þýðing Thors Vilhjálmssonar kom fyrst út 1987 en margir muna einnig eftir vinsælli kvikmynd Bille August frá árinu 1993.

Hús andanna er heillandi og stórbrotin ættarsaga þar sem litríkar persónur, lífs og liðnar, taka þræði örlaganna í eigin hendur og missa þá á víxl. Clara del Valle, Esteban Trueba, afkomendur þeirra, tengdafólk og nágrannar verða ljóslifandi í leiftrandi skemmtilegri frásögn sem markast af ósviknu suðuramerísku töfraraunsæi. Í þessari undraverðu sagnaveröld eru ættarstolt, yfirskilvitlegir eiginleikar og holdlegar ástríður ráðandi öfl í lífi fólksins sem tekst á við umrót og átök í landi sínu á viðsjárverðum tímum; saga fjölskyldunnar verður þjóðarsaga, fortíðin endurómar í nútíðinni.

INNskráning

Nýskráning