Íslensk listasaga

Íslensk listasaga kemur út með haustinu

Á haustmánuðum 2011 kemur út metnaðarfullt yfirlitsverk um íslenska myndlist. Íslensk listasaga er fimm binda verk sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Bindin verða gefin út samtímis í vandaðri öskju og verður verkið allt um 1500 blaðsíður.

Forlagið gefur verkið út í samvinnu við Listasafn Íslands og er markmiðið með útgáfunni ekki aðeins að gera grein fyrir sögu íslenskrar myndlistar heldur einnig að styrkja og móta hugmyndir okkar um myndlist þjóðarinnar, sameiginlega arfleifð hennar og sjálfsmynd.

Verkefnið hefur átt sér langan aðdraganda en í ársbyrjun 2007 var Ólafur Kvaran ráðinn ritstjóri þess, ritstjórn skipuð og samningar gerðir við fjórtán höfunda. Við ritun verksins er lögð sérstök áhersla á einkenni íslenskrar myndlistar á hverju tímaskeiði, sögulegt samhengi hennar og samband við alþjóðlega listasögu. Í umfjöllun og túlkun höfundanna er þannig leitað svara við ýmsum sameiginlegum spurningum en jafnframt eru áherslur þeirrar ólíkar því viðfangsefnin eru um margt ólík.

Í hverju bindi er tekið mið af skýrum kaflaskiptum í íslenskri listasögu. Fyrsta bindið fjallar um tímabilið frá seinni hluta 19. aldar fram til um 1930, tímabil brautryðjendanna þegar rómantísk náttúrutúlkun og symbólismi eru ríkjandi. Í öðru bindi (1930–1945) er ritað um þau þáttaskil sem urðu um 1930 þegar fram á sjónarsviðið kom ný kynslóð listamanna sem tengdist róttækum viðhorfum í evrópskri myndlist. Í þriðja bindinu (1945–1960) er fjallað um abstraktlistina þegar hlutverk listarinnar var ekki lengur fólgið í því að túlka hinn sýnilega veruleika með beinum hætti heldur með abstraktformum og litum. Með tilkomu nýsúrrealisma, popplistar og nýdadaisma upp úr 1960 sköpuðust forsendur fyrir róttækri nýsköpun í íslenskri myndlist, og í fjórða bindinu (1960–1980) er tekið mið af þessum kaflaskiptum í byrjun sjöunda áratugarins. Þau tímamót sem urðu með tilkomu nýja málverksins, gjörningalistarinnar, myndbandslistarinnar og endurnýjunar hugmyndalistarinnar í byrjun níunda áratugarins marka svo upphaf fimmta og síðasta bindis listasögunnar sem fjallar um tímabilið frá 1980 og fram yfir aldamótin 2000.

Í verkinu verða litljósmyndir af mörg hundruð listaverkum, sem varðveitt eru á söfnum hérlendis sem erlendis eða eru í einkaeigu, og yfirgripsmikill fróðleikur sem nú verður aðgengilegur almenningi á einum stað. Útgáfa Íslenskrar listasögu er því mikið menningarlegt framlag sem vert er að gefa gaum á erfiðum tímum í íslensku þjóðlífi.

Verkið verður prentað í prentsmiðjunni Odda en sennilega er það einsdæmi að jafn umfangsmikið verk komi út í einu lagi hér á landi.

INNskráning

Nýskráning