Kristina Ohlsson

Verðlaunahöfundur verst hryðjuverkum

Kristina Ohlsson, höfundur bókarinnar Utangarðsbörn, hlaut fyrir skömmu sænsku Stabilo-verðlaunin, sem svo viðeigandi eru kennd við hina pennana vinsælu. Í umsögn dómnefndarinnar sem skipuð er sænskum bóksölum kom fram að bækur hennar njóti jafnra vinsælda hjá körlum og konum  og viðfangsefni þeirra séu brýn málefni dagsins í dag (s.s. heimilisofbeldi og málefni innflytjenda). Spennan í bókum hennar sé síðan bæði tengd áhugaverðum persónum sem og byggingu sagnanna.

Kristina er nú nýflutt frá Stokkhólmi til Vínarborgar þar sem hún starfar á vegum Öryggissamvinnustofnunar Evrópu. Áður gengdi hún starfi öryggisráðgjafa hjá sænska ríkislögreglustjóraembættinu svo innsýn hennar í glæpaheima er meiri en margra kollega hennar í rithöfundastétt. Nú felst dagvinna hennar í því að berjast gegn hryðjuverkum en á kvöldin vinnur hún að sinni þriðju bók. Sú kemur út í Svíþjóð í byrjun apríl en viðfangsefni hennar eru svokallaðar „snuff-myndir“.

INNskráning

Nýskráning