Hefur þú gaman af bókum … og prjónaskap? Þá er komin út bók fyrir þig. Metsölubók Kate Jacobs um Prjónaklúbbinn á Manhattan er heillandi bók um vináttu, ást, fjölskyldu og prjónaskap. Prjónabúð Georgiu Walker er ekki bara miðdepill lífs hennar og tólf ára dótturinnar Dakotu, hún er líka athvarf kvenna sem hittast þar til að prjóna, tala, hlæja og gráta saman. Klár hönnuður á framabraut, öldruð ekkja, ung femínísk menntakona, kjaftfor atvinnulaus ritstjóri, verðandi einstæð móðir á fimmtugsaldri …
Jacobs er kanadískur rithöfundur og ritstjóri, búsett í Kaliforníu. Prjónaklúbburinn, fyrsta skáldsaga hennar, sló rækilega í gegn og komst í efsta sæti metsölulista New York Times.
Aðalheiður Jónsdóttir þýddi.