Ertu að skrifa?

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka ítreka auglýsingu eftir skáldsögum fyrir börn og unglinga, að lágmarki 50 blaðsíður að lengd.  Skilafrestur er til 1. febrúar 2011. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna.

Handritum skal skila í fjórriti til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík


Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í umslagi.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1986; 26 bækur hafa komið út undir merkjum verðlaunanna eftir 27 höfunda, sem margir hverjir stigu sín fyrstu skref á ritvellinum með verðlaunabókinni. Á síðasta ári hreppti Þorgrímur Þráinsson Íslensku barnabókaverðlaunin með bók sinni Ertu Guð, afi?

INNskráning

Nýskráning