Matreiðslubókin Smáréttir Nönnu, eftir okkar ástsælu Nönnu Rögnvaldardóttur, er tilnefnd til Gourmand verðlaunanna frönsku í flokknum „Best easy recipes“. Verðlaunin eru meðal þeirra virtustu á sviði matar- og vínbóka og hefur verið lítk við Ólympíuleika kokkabókanna. Tilgangur þeirra er meðal annars að hjálpa lesendum að velja milli þeirra tugþúsunda titla sem koma út árlega um mat og vín og auka þekkingu og virðingu fyrir matar- og vínmenningu.
Alls voru sendar inn bækur frá 154 löndum í keppnina og er því um harða samkeppni að ræða. Keppnin fer þannig fram að bækur eru tilnefndar til hinna ýmsu flokka en jafnframt er valinn sigurvegari hvers lands fyrir sig sem keppir um aðalverðlaunin.
Bækur Nönnu hafa áður verið tilnefndar til verðlaunanna, þar á meðal metsölubókin Maturinn hennar Nönnu sem kom út í fyrra sem tilnefnd var í flokkunum „Best Innovative Food Book“ og „Best Cookbook Illustrations“.