Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir skáldsögum fyrir börn og unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2011. Handritið skal vera nógu langt til að bera uppi heila bók, án myndskreytinga, að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd. Skilafrestur er til 1. febrúar 2011. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna. Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í umslagi. Allir hafa rétt til þátttöku.
Handritum skal skila í fjórriti til:
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík
Stofnað var til Íslensku barnabókaverðlaunanna í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar árið 1985. Ármann var þá vel þekktur og vinsæll rithöfundur en langaði til að leggja sitt af mörkum til að auðvelda yngri höfundum að koma sér fram á sjónarsviðið. Það hefur sannarlega heppnast því verðlaunabækurnar eru nú orðnar 26 talsins og fjölmargir höfundar hafa gefið út sínar fyrstu bækur undir merkjum verðlaunanna. Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa nú fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf, IBBY á Íslandi og Forlagið. Dómnefnd verðlaunanna skipa fulltrúar þessara aðila auk tveggja nemenda úr 8. bekk.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Forlaginu, sigthrudur@forlagid.is
Eftirtaldar bækur hafa hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin:
Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, 1986
Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur, 1987
Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur, 1988
Álagadalurinn eftir Heiði Baldursdóttur, 1989
Í pokahorninu eftir Karl Helgason, 1990
Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, 1991
Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, 1992
Brak og brestir eftir Elías Snæland Jónsson, 1993
Röndóttir spóar eftir Guðrúnu H. Eiríksdóttur, 1994
Eplasneplar eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur, 1995
Veislan í barnavagninum eftir Herdísi Egilsdóttur (texti) og Erlu Sigurðardóttur (myndir), 1995
Grillaðir bananar eftir Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 1996
Risinn þjófótti og skyrfjallið eftir Sigrúnu Helgadóttur (texti) og Guðrúnu Hannesdóttur (myndir), 1996
Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson, 1997
Heljarstökk afturábak eftir Guðmund Ólafsson, 1998
Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur, 2000
Sjáumst aftur … eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, 2001
Ferðin til Samiraka eftir Hörpu Jónsdóttur, 2002
Biobörn eftir Yrsu Sigurðardóttur, 2003
Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, 2004
Háski og hundakjöt eftir Héðin Björnsson, 2006
Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar eftir Margréti Tryggvadóttur (texti) og Halldór Baldursson (myndir), 2006
Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur, 2007
Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson, 2008
Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson, 2009
Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, 2010
(Árin 1996 og 2006 var auglýst sérstaklega eftir myndskreyttum bókum, auk hefðbundinna skáldsagna)