Klanið hennar Þórunnar

Síðastliðið sunnudagskvöld (6/12) kom saman á Café Rosenberg fríður hópur manna og kvenna. Þórunn Erlu- og Valdirmarsdóttir hafði safnað saman vinum og ættingjum til að fagna útkomu nýrra bóka. Fyrstur á svið var Gunnar Theodór Eggertsson, sonur Þórunnar, með bók sína Köttum til varnar (ágóðinn rennur til Kattholts). Þórunn kynnti bók sína Mörg eru ljónsins eyru. Yrsa Þöll Gylfadóttir, tengdadóttir Þórunnar, las úr fyrstu skáldsögu sinni Tregðulögmálið og Megas og Þórunn lásu úr bók sinni Dagur kvennanna.

Höfundarnir fluttu einnig tónlistaratriði, Þórunn lék á píanó og söng í fyrsta skipti opinberlega – Lilja systir hennar lék undir á horn. Þórunn söng auðvitað alveg eins og engill, tónlistin henni greinilega í blóð borin. Gunnar Theodór lék á píanó og Yrsa Þöll söng, þar fer hæfileikaríkt ungt par. Og fleiri tónlistarmenn létu tónana óma, Bryndís Halla Gylfadóttir, systir Yrsu ásamt fríðu föruneyti úr Sinfóníunni og Megasi, hljómsveitin Malenirophrenia, hljómsveit Gunnars Theodórs kynnti nýjan disk.

Kynnir kvöldsins var Vala Þórsdóttir og hún las úr nýrri bók sinni Þankaganga. Og Þórunn Valdimarsdóttir hélt um þessa undurljúfu og fallegu kvöldstund á sinn einstaka hátt.

INNskráning

Nýskráning