Ófeigur Sigurðsson, höfundur Skáldsögu um Jón, er spurður spjörunum úr á Miðjunni og kemur upp um alls konar vafasamar tilhneigingar. Til dæmis fannst honum óheyrilega leiðinlegt að vinna á pitsastað og langaði mest til að vera rallýökumaður þegar hann var lítill. En ef hann hefði núna allan tíma í heiminum og nóga peninga myndi hann skrifa ritseríu um tilhugalíf fugla með rúnaletri. Honum finnst skemmtilegra að skrifa skáldsögur en yrkja ljóð en skemmtilegast er að leika sér með buslubækur … Lesið yfirheyrsluna í heild á Miðjunni.