Ekkert svartnætti

Kristín Steinsdóttir rithöfundur var í viðtali hjá Agli Helgasyni í Kiljunni í vikunni þar sem þau spjölluðu um skáldsögu hennar, Ljósu, og kveikjuna að henni; ævi og örlög ömmu Kristínar sem þjáðist af geðhvarfasýki eins og Ljósa, aðalpersóna sögunnar. Á sögutímanum, sem hefst seint á 19. öld og nær fram á fjórða áratug síðustu aldar, höfðu menn fá ráð við geðsjúkdómum önnur en að loka fólk inni eða „smíða utan um það“ ef það var æst og illviðráðanlegt. Þannig er með konuna í sögunni, sem þá er orðin húsmóðir á stóru heimili og margra barna móðir; fólkið hennar er algerlega vanmáttugt til að hjálpa henni í köstunum og getur fátt annað gert en að reyna að sjá til þess að hún skaði hvorki sjálfa sig né aðra – og má rétt ímynda sér andlegar þjáningar þess og sjúklingsins sjálfs við þær aðstæður. Öllu þessu gerir Kristín góð skil í sögu sinni sem hefur fengið þær umsagnir að hún sé hrífandi falleg, áhrifamikil og vel stíluð. Í viðtalinu segir Kristín frá því að hún hafi aflað sér margvíslegra heimilda um geðsjúkdóma og aðstæður geðsjúkra fyrr á tíð enda skilar sú þekking sér í sögunni. Þetta er þó engin harmsaga frá upphafi til enda eins og Egill Helgason taldi ástæðu til að árétta í lok viðtalsins; Ljósa sé „mjög skemmtileg … lifandi persóna, skapmikil og heit“ og bókin ekkert  svartnætti. – Sem sagt; grátur og hlátur, líkt og segja má um svo margar góðar sögur!

INNskráning

Nýskráning