BragiOlafsson

Bragi yfirheyrður

Bragi Ólafsson bar tólg á dráttarteina í Daníelsslip á árum áður og lyktin ásækir hann enn. Hann heyrði fyrst af fyrirbærinu sjálfíkveikju (spontaneous combustion) þegar hann las Jakob ærlegan, hann kann að óperera telexvél og skrifar af ríkri þörf. Bragi hefur ávarpað vaxmyndastyttu, hann heldur upp á verk Nikolais Gogol og aðhyllist það ráð að ljúka dagsverkinu á þeim stað þar sem maður hlakkar til að halda áfram daginn eftir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bráðskemmtilegu viðtali við Braga um allt og ekkert á Miðjunni í tilefni af útgáfu nýrrar skáldsögu hans sem ber það forvitnilega heiti Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson.

INNskráning

Nýskráning