Arnaldur Indriðason

Arnaldur á kálfskinnsfrakka

Bergljót Soffía Kristjánsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum skrifar skemmtilega grein um Arnald Indriðason og verk hans í nýjan Skírni (haust 2010). Þar athugar hún hvernig Arnaldur vinnur markvisst með íslenska og erlenda bókmenntaarfleifð í bókum sínum og tekur sérstaklega tvær þeirra fyrir, Syni duftsins (1997), sem var fyrsta bók Arnaldar,  og Konungsbók (2006). Hún sýnir hvernig hann notar markvisst allt frá byrjun vísanir í bókmenntir og aðra mennt til að virkja lesendur, athyglisgáfu þeirra og menningarlegan áhuga, og segir meðal annars: „Aðferðir hans miða ekki að því að þeir gefi sig einvörðungu á vald spennu eða taki með rökhugsun sinni þátt í að leysa morðgátu heldur og hinu að þekking þeirra, ímyndunarafl, tilfinningar og vitsmunir alemnnt fái að njóta sín.“ Þetta telur hún að eigi ekki lítinn þátt í vinsældum hans.


INNskráning

Nýskráning