Hugrún Hrönn

Skapandi systur, bók og búð

Í dag kemur út skáldsagan Stolnar raddir eftir Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttur. Af því tilefni efnir hún til útgáfugleði ásamt systur sinni, fatahönnuðinum Unu Hlín, sem einmitt opnar sína eigin verslun á morgun. Fögnuðurinn fer fram í húsakynnum nýju verslunarinnar Royal Extreme í Bergstaðastræti 4 á morgun laugardag og hefst kl. 17. Þar gefst gestum kostur á að berja augum nýja bók  og flottustu föt bæjarins en partýið stendur til kl. 20.

INNskráning

Nýskráning