Sýning byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur um Fólkið í kjallaranum verður frumsýnd nk. laugardag, þann 9. október á Nýja sviði Borgarleikhússins. Gríðarleg stemmning er fyrir verkinu sem glöggt má sjá því uppselt er næstum tuttugu sýningar. Verið er að bæta við aukasýningum svo það er um að gera að fylgjast vel með vef Borgarleikhússins.
Bók Auðar er kraftmikil skáldsaga sem skoðar af dirfsku ólíka heima ’68-kynslóðarinnar og góðæriskynslóðarinnar. Klara er í sambúð með ungum markaðsmanni á uppleið sem elskar hana heitt og hefur búið henni afar smekklegt heimili. Kvöld eitt halda þau vinum hans glæsilegt matarboð. En í kjallara hússins býr trassinn Barði sem minnir Klöru á skrautlega fortíð í hippahúsum foreldranna, og þegar hún sér svip af konu bregða þar fyrir vakna minningar sem erfitt er að bæla niður.
Auður hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004 fyrir bókina sem einnig var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Leikstjóri sýningarinnar er Kristín Eysteinsdóttir en leikgerðina vann Ólafur Egill Egilsson. Það er síðan valin maður og frú í hverju horni en með hlutverk í sýningunni fara meðal annars Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Jóhann Sigurðarson.