Jón Baldur

Stórkostleg tækifæri

Myndlýsirinn og listamaðurinn Jón Baldur Hlíðberg undirritaði á dögunum tímamótasamning við breska umboðsskrifstofu sem starfar með fremstu listamönnum heims á sviði náttúruteikninga og ljósmyndunar. Wildlife Art Company var stofnsett af dýrafræðingnum Mark Carwardine sem Íslendingar kannast m.a. við úr náttúrulífsþáttunum Síðustu forvöð sem sýndir eru á RÚV um þessar mundir en þar ferðast Carwardine um heiminn ásamt leikaranum Stephen Fry.

Jón Baldur kveðst afar ánægður með þá viðurkenningu sem felst í þessu erlenda samstarfi því innanbúðar hjá Wildlife Art Company séu hans virtustu kollegar á alþjóðlegum vettvangi. Hann er því að sönnu farinn að spila með stóru strákunum því þó myndir náttúrumyndir hans hafi birst í ótal bókum og tímaritum víða um lönd margfaldast tækifæri hans við að fá slíkan gæðastimpil. „Með þessu kemst ég vonandi í þann hóp sem fyrstur er skoðaður af fjölda stórra viðskiptavina og ég verð ekki lengur háður tilviljunum um hvort einhver finni mig þegar útgefandi leitar að myndefni,” segir Jón Baldur.

Jón Baldur hefur haft myndlýsingar að meginstarfi og myndskreytt fjölda kennslubóka, korta og fræðirita, auk annarra rita sem tengjast náttúrufræði. Meðal þekktustu bókverka Jóns eru hin geysivinsælu rit Íslenskar kynjaskepnur, Íslenskir fiskar og Íslensk spendýr en nýjasta verk hans er handbókin Hvalir. Einhver tími mun líða þartil efni Jóns verður komið upp á heimasíðu TWAC þar sem um er að ræða meir en tvöþúsund myndir.

Íslenska heimasíðu Jóns Baldurs má sjá hér:

Síðu Wildlife Art Company er að finna hér.

INNskráning

Nýskráning