Von er á nýrri ljóðabók í vikunni eftir Anton Helga Jónsson. Bókin sú ber titilinn Ljóð af ættarmóti og er formlegur útgáfudagur á morgun, miðvikudaginn 15. september. Í bókinni heyrast raddir fólks sem bæði fagnar og gleðst, sem harmar og skammast, áfellist aðra eða engist af samviskubiti. Við hvetjum ljóðaunnendur til þess að kíkja inn á síðuna anton.is og fá þar forsmekkinn af því sem koma skal.
Þeim sem vilja fá áritað eintak af bókinni er bent á senda pöntun á netfangið forlagid@forlagid.is fyrir 30. september. Þeir kaupendur fá bókina á Forlagsverði og bókina senda heim að dyrum.
Haldið verður upp á útkomu bókarinnar í Eymundsson við Skólavörðustíg 11 næstkomandi fimmtudag, kl. 17. Þar mun Anton lesa upp og segja frá tilurð bókarinnar auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar. Verið velkomin!