Sigurður Pálsson var gestur ljóðlistarhátíðarinnar í Struga nýverið. Þar las hann upp við nokkur tækifæri og var auk þess frummælandi á málþingi um ljóðlist.
Þetta er ein virtasta og elsta ljóðlistarhátíð í heimi, haldin í Struga í Makedóníu, sem er eitt fyrrverandi lýðvelda Júgóslavíu. Struga-hátíðin hefur verið haldin árlega frá 1962 og undanfarin ár hefur UNESCO stutt hátíðina dyggilega. Tæplega sextíu ljóðskáldum frá fjölmörgum löndum er boðið á hátíðina og er það nokkuð eftirsótt að fá boð þangað. Út er gefin bók með ljóðum allra skáldanna þýdd á makedónísku.
Gullni sveigurinn, verðlaun Struga-hátíðarinnar, eru einhver virtustu verðlaun sem veitt eru í ljóðlist. Listinn yfir verðlaunahafa er glæsilegur, m.a. nokkur skáld sem síðar fengu Nóbelsverðlaunin, svo sem Neruda, Montale, Brodsky og Heaney en einnig eru þarna höfundar eins og Auden, Ginsberg, Hughes, Adonis, Ritsos, Senghor, Lundkvist og þannig mætti lengi telja.
Í þetta skiptið var það búlgarska skáldið Lyubomir Levchev sem fékk verðlaunin.
Einnig eru veitt hvatningarverðlaun fyrir fyrstu ljóðabók höfundar og í ár var það eistneska ungskáldið Siim Kera sem fékk þau.
Auk veglegrar verðlaunaathafnar að viðstöddum forseta Makedóníu er Struga-hátíðin vel þekkt fyrir almennan áhuga heimamanna á ljóðlist sem birtist m.a. í frægri opnunarhátíð sem haldin er í Menningarmiðstöðinni í Struga og einnig í lokaupplestri hátíðarinnar sem fer fram á brúnni yfir ána Drin.