Vatn handa fílum - mynd

Vatn handa fílum í bíó

Metsölubókin Vatn handa fílum eftir Söru Gruen verður færð á hvíta tjaldið innan skamms en fréttir berast nú frá Ameríku að búið sé að ráða stórstjörnurnar Robert Pattinson og Reese Witherspoon í aðalhlutverkin. Pattison þessi er af mörgum álitinn mesti ungmeyjar-hrærir allra tíma en hann hefur skartað vígtönnum í sínu þekktasta hlutverki (sem vampíran Edward í Ljósaskipta-myndunum). Pattison mun leika hinn sjarmerandi sögumann bókarinnar, Jacob Jankowski, sem starfaði sem dýralæknir í farandsirkus á kreppuárunum fyrri í Bandaríkjunum. Myndin verður að öllum líkindum frumsýnd næsta vor, við mælum með því að þeir bókaormar sem ekki hafa þegar lesið þessa frábæru sögu drífi í því sem fyrst, svo þeir nái eins og við hin að lesa hana aftur áður en hún fer í bíó!




INNskráning

Nýskráning