Makalaus – sjónvarpsþáttur líka!

SkjárEinn og blaðakonan, bloggarinn og rithöfundurinn Þorbjörg Marinósdóttir hafa undirritað samstarfssamning um gerð sjónvarpsseríu eftir bókinni Makalaus. Þessi frábæra saga hefur verið á metsölulista í allt sumar og fengið fantagóðar viðtökur – enda drepfyndin. Áætlað er að framleiðsla þáttanna hefjist síðar á þessu ári, að því er segir í tilkynningu.

„Eins og í bókinni munu þættirnir sýna stefnumótamenningu landsmanna og þær skemmtilegu uppákomur sem geta skapast við þær aðstæður,“ segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrástjóri SkjásEins.

Lesa bloggfærslu Tobbu um undirskrift samningsins.

Myndbandsviðtal Vísis við Tobbu Marínós og Kristjönu Thors dagskrárstjóra.



INNskráning

Nýskráning