Gagnrýnandinn Skafti Þ. Halldórsson skrifar um nýjustu bók Sigurðar Guðmundssonar fyrir Morgunblaðið og er svona salí-kátur með verkið Dýrin í Saigon. Bókin fær fjórar stjörnur hjá Skafta sem segir hana í senn skáldskap og heimspekilega tilraun um manninn: „Bókin virkar því á mig sem ljóðrænt hugmyndaverk fullt með erótík þótt sú erótík verði aldrei beinlínis holdleg. Það merkilega við þetta flókna hugmyndaverk er hversu læsileg bókin er og aðgengileg þrátt fyrir allar hugmyndaflækjurnar.“
Skáld, samkynhneigður svanur, enskumælandi máfur og fjórtán ára heimspekingur eru aðalpersónurnar í þessari forvitnilegu bók. Við hvetjum bókmenntaáhugafólk og aðra listunnendur til þess að kynna sér hana vel, lesa og njóta.