Missir bók mánaðarins

Sagenhaftes Ísland valdi stuttsögu Guðbergs Bergssonar, Missi, sem bók mánaðarins og birti viðtal við höfundinn á vef sínum fyrir skömmu. Missir er afar áhrifamikil saga sem meðal annars lýsir óhjákvæmilegu hlutskipti okkar allra, ellinni og dauðanum. Í viðtalinu talar Guðbergur um tilruð sögunnar: „Jörðin og allt sem á henni er, menn, dýr og blóm, er hringrás niðurníðslu og uppvaxtar. Þegar ég var barn var talað um fegurð og visku ellinnar. Ég trúði því varla, enda ólst ég upp við samgang við karla og kerlingar og hafði talsverða reynslu af kynjunum komnum á aldur rúsínuandlitsins. En einu sinni þegar ég vann á Hótel Borg sem næturvörður og Kjarval bjó þar, þá kom hann að gamalmenni sem sat dauðadrukkið og sofandi í útskorna stólnum í gestamóttökunni og málarinn sagði: Þú ert fallegur vegna þess að þú ert gamalmenni. Gamli karlinn hrökk upp við hrósið og hann yngdist um tuttugu ár. Það rann af honum í skyndi og hann ljómaði næstum í fegurð æskunnar. Hrós Kjarvals hafði vakið hann frá áfengisdauða til lífs í bjartsýni, að minnsta kosti fram að lokun barsins. Kannski hefði hrósið getað vakið hann upp frá alvarlegri dauða og drifið hann upp úr kistunni í fullu fjöri, eins og manninn í kvikmyndinni Orðið eftir Dreyer. Það var álit manna hér á landi að menn væru fallegastir í dauðanum og það var sannleikur, að minnsta kosti um suma.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

INNskráning

Nýskráning