Á morgun þriðjudag kemur út hjá Máli og menningu ný ljóðabók eftir Berg Ebba Benediktsson. Sú ber heitið Tími hnyttninnar er liðinn og er hún fyrsta bók höfundar sem þegar hefur látið til sín taka á öðrum sviðum. Að þessu tilefni verður haldið útgáfuhóf í bókaverslunni Eymundsson við Skólavörðustíg kl. 17.30 á morgun þar sem bókin verður kynnt á ýmsa lund. Við hvetjum ljóðvini og aðra velunnarra til þess að mæta og gleðjast með okkur.