Árleg vika bókarinnar hefst nú á miðvikudaginn og við hvetjum landsmenn til þess að nýta sér lestrarávísunina sem berst þeim inn um lúguna í dag eða á morgun. Við minnum einnig á að næstu 10 dagana fellum við niður sendingargjaldið á Forlagsvefnum svo það er um að gera að nýta tækifærið og panta sér nokkrar góðar bækur fyrir vorið. Hér á vefnum er að finna fjölda góðra tilboða og frábært úrval af nýjum bókum.