Ofsi på dansk

Danska forlagið Gyldendal hefur keypt útgáfuréttinn á skáldsögu Einars Kárasonar, Ofsa, sem kom út hjá Máli og menningu árið 2008.  Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2009 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010. Fyrri bók Einars um Sturlungaöldina, Óvinafagnaður, er þegar komin út hjá sama forlagi og hlaut góðar undirtektir í Danmörku.

Í þessum kynngimögnuðu sögum stíga persónur mikilla róstutíma Íslandssögunnar fram í stærð sinni og smæð og segja hug sinn. Einar hefur einstakt lag á að miðla þessu sögulega efni þannig að auðvelt er að lifa sig inn í atburði, skilja og skynja og það kunna aðdáendur bókmennta og íslenskrar fornmenningar vel að meta bæði hér heima og erlendis. Útgáfuréttur Ofsa hefur þegar verið seldur til Þýskalands en Óvinafagnaður kom einnig þar í landi sem og Finnlandi

INNskráning

Nýskráning