„Varaðu fjölskyldu og vini við því að þú verðir óviðræðuhæf klukkutímum saman, kannski í einn eða tvo daga, komdu þér svo þægilega fyrir og njóttu!“ segja fræðingar í útlöndum um nýjustu bók Dorothy Koomson. Góða nótt, yndið mitt hefur síst vakið minni lukku en metsölubókin Dóttir hennar, dóttir mín sem rann út eins og heitar lummur. Góða nótt, yndið mitt er kjörin bók í bústaðinn og hentar afskaplega vel með súkkulaðipáskaeggjum.