Fjöruverðlaunin á sunnudaginn

Grasrótarhópur kvenna innan Rithöfundasambandsins og Hagþenkis stendur að Góugleði nk. sunnudag. Þá verða Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna verða veitt fjórða árið í röð. Dagskráin hefst á erindi breska metsöluhöfundarins Kate Mosse sem fjalla mun um tilurð og sögu Orange bókmenntaverðlaunanna. Mosse var einn helsti hvatamaður þess að verðlaununum var komið á og er heiðursfélagi samtakanna sem veita þau.

Erindi sitt flytur Mosse á Hótel Sögu kl. 11 á sunnudaginn. Í framhaldinu verða síðan Fjöruverðlaunin veitt í þremur flokkum: Fagurbókmenntir, fræðirit, barna- og unglingabækur en afhending þeirra verður kl. 12. Að lokum verður boðið upp á léttar veitingar.

Við hvetjum alla bókaunnendur til að mæta!


INNskráning

Nýskráning