Íslensk meðvirkni, framúrstefna og nýsmíðar

Fyrsta hefti ársins af Tímariti Máls og menningar er komið út. Meðal efnis eru sem fyrr bæði greinar og gagnrýni, nýsmíðar skálda á ýmsum aldri, ádrepur, viðtöl og annar fróðleikur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ritar greinina „Háskaleg og ósjálfbær samfélagstilraun“, og leitast þar við að greina orsakir efnahagshrunsins hér. Þorsteinn Antonsson fjallar um ástir Elíasar Marar og dregur fram forvitnileg handrit úr eftirlátnum fórum Elíasar. Árni Heimir Ingólfsson fræðir lesendur um framúrstefnu í íslensku tónlistarlífi á 7. áratugnum, hneykslanlegar uppákomur á vegum Musica Nova og skrautleg uppátæki ungu tónskáldanna eins og Atla Heimis og Magnúsar Blöndal. Og svo miklu meira til!

INNskráning

Nýskráning