Matur, bækur og brautryðjendur

Nanna Rögnvaldardóttir, matgæðingur og ritstjóri, er meðal frummælenda á forvitnilegu málþingi um mat og bækur sem haldið verður í Norræna húsinu nk. laugardag. Nanna mun fræða gesti um líflega sögu matreiðslubóka hér á landi og bera niður m.a. hjá Magnúsi Stephensen, Elínu Briem og Helgu Sigurðardóttur.

Málþingið er haldið laugardaginn 27. febrúar frá kl. 13-17. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna opnar þingið. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Nánar má fræðast um dagskrána hér.

INNskráning

Nýskráning