Fjögur íslensk bókaforlög hafa í samvinnu við Eymundsson ákveðið að gefa andvirði að sölu sjö nýrra bóka til stuðnings íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni sem starfað hefur á Haítí síðustu daga. Söluverðmætið verður um 4,5 milljónir króna sem ætlað er til endurnýjunar á búnaði sem sveitin skildi eftir á eyjunni til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu. Um er að ræða bækur sem teljast til stórvirkja í íslenskri bókaútgáfu og verða þær seldar í Eymundsson um allt land nú um helgina. Sá viðburður markar upphaf átaks sem nefnist „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“. Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta við söfnunarupphæðina 10% af söluandvirði allra barnabóka í verslunum sínum þessa daga. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar.
Íslenska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að greiða fimm milljónir fyrir þann búnað sem alþjóðabjörgunarsveitin skildi eftir en markmiðið er að bókaþjóðin bjargi því sem upp á vantar. Félagar úr sveitinni hleypa átakinu af stokkunum í Eymundsson í Austurstræti kl. 14 á morgun, föstudag.
Stórvirkin sem um ræðir eru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700-1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.
Jafnframt hyggst Félag íslenskra bókaútgefenda á næstu vikum standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.
Aukin þekking og bætt menntun verður lykilatriði í framtíðaruppbyggingu á Haítí. Þar munu bækur gegna veigamiklu hlutverki. Íslenskar bækur gagnast vitaskuld ekki beint í þessu skyni, en með því að breyta þeim í fjármuni með hjálp íslenskra bókaunnenda öðlast þær vængi og leggja þurfandi lið. Það er von þeirra sem að verkefninu standa að bókaþjóðin taki framtakinu vel – eignist kjörgripi en leggi jafnframt sitt af mörkum við uppbyggingu á hamfarasvæðunum.