Litla skrímslið og stóra skrímslið hafa alla burði til þess að sigra heiminn. Bækurnar um skrímslin eru nú orðnar fimm talsins en sú allra nýjasta, Skrímsli í heimsókn, kætti ófáa skrímsla-aðdáendur fyrir jólin. Bækurnar koma samtímis út á Íslandi, í Svíþjóð og Færeyjum en þaðan eru höfundar hennar ættaðir; Áslaug Jónsdóttir er margverðlaunaður höfundur bæði barnabóka og leikverka, Rakel Hemsdal er færeyskur höfundur bæði barnabóka, leikrita og smásagna og kollegi þeirra Kalle Güettler er frá Svíþjóð og skrifar barna- og unglingabækur og kennsluefni.
Skrímslabækurnar hafa einnig komið út í Danmörku en brátt bætist Finnland í safnið ásamt Spáni og Frakklandi. Spænska útgáfan kemur einnig út í Suður-Ameríku og í Bandaríkjunum svo skrímslin hljóta að teljast býsna víðförul nú þegar.
Fyrsta bókin, Nei! Sagði litla skrímslið, hlaut Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin og Stór skrímsli gráta ekki var sæmd Barnabókaverðlaunum menntaráðs Reykjavíkur.