KK spilar á Rósenberg

Tónlistarmaðurinn Kristán Kristjánsson , betur þekktur sem KK, heldur tvenna tónleika á Kaffi Rósenberg fimmtudaginn 28. og föstudaginn 29. janúar. Efnisskrá kvöldanna tveggja verða fyrstu tvær plötur KK, Lucky One og Bein Leið.

Lucky One kom út árið 1991 og Bein Leið árið eftir, 1992 og með þeim stimplaði KK sig inn í íslenskt tónlistarlíf og hefur verið burðarás þar síðan.

Með KK spila þeir sem spiluðu inn á plöturnar á sínum tíma, en á plötunni Bein Leið kom hið goðsagnakennda KK band fyrst saman.

Hægt er að kaupa miða í forsölu á síðunni www.grapewire.is.

INNskráning

Nýskráning