Íslensku myndskreytiverðlaunin 2009

Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður hlaut um helgina Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir bók sína Ef væri ég söngvari.  Bókin inniheldur yfir 120 kvæði fyrir börn sem Ragnheiður valdi og myndskreytti en bókin hefur notið mikilla vinsælda hjá lesendum á öllum aldri og er meðal allra söluhæstu bóka síðasta árs.  Dómnefndin var á einu máli um að í bókinni væru einstaklega vel unnar myndskreytingar þar sem nostrað hafi verið við hvert smáatriði: „Það var langur vegur frá hugmynd að bók í þessu tilfelli. Fyrst dvaldi Ragnheiður lengi yfir lagavalinu. Þegar það lá fyrir hófst myndavinnan og ef fólk rýnir í myndirnar getur það bara ímyndað sér hvað hún hefur tekið langan tíma. Öll smáatriði eru klippt út í ótal gerðir af pappír sem hún safnar út um víðan völl og límir svo saman með nákvæmni skurðlæknis.“

Nú stendur fyrir sýning í Gerðubergi þar sem sjá má myndskreytingar úr barnabókum eftir þá 25 listamenn sem kepptu um Íslensku myndskreytiverðlaunin.

INNskráning

Nýskráning