Ævisaga Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís – Kona verður forseti, hefur vakið mikla athygli og er ein mest selda bókin fyrir þessi jól. Vefritið Miðjan birti forvitnilegt viðtal við Vigdísi á dögunum þar sem m.a. var rætt um pólitík fortíðar og nútíðar. „Við förum bráðum að sjá til sólar, við þurfum bara að temja okkur hógværð, halda ekki að við séum best og mest og meta ekki öll verðmæti í peningum. Við þurfum að leita að verðmætunum inni í okkur sjálfum og spyrja okkur reglulega að því hvað það er sem er verðmætast í lífinu,“ segir Vigdís. Viðtalið má lesa hér.