Hugvekja í Stafholti þriðja sunnudag í aðventu 2009
Góðir gestir
Það er mér sérstakur heiður að fá að velta vöngum hér með ykkur í kvöld. Auðvitað kom mér persónulega fyrst í hug að hér hefði sá maður sem ég hef haft að helsta viðfangi undanfarin ár, Snorri Sturluson, haft forræði á stað á þrettándu öld – og bjó hér samfellt á árunum 1221-1224. Hér var miðstöð á vegum kirkju – nokkrir klerkar – sem mynduðu samfélag menntaðra manna, með tilheyrandi söng og bóklestri.
Þvert á það sem margir ímynda sér, var miðaldaþjóðfélagið íslenska um margt siðsamt samfélag, daglega gengu menn til tíða og voru þá áminntir um hófsamt líferni og góða siðu. Höfðingjasamfélag þrettándu aldar var að ýmsu leyti menningarlegt samfélag. En örlög þess eru okkur síðaratímamönnum áminning um hversu fallvalt veraldargengið er, hversu viðkvæm samfélög geta verið.
Sagan er full af svona dæmum, dæmum um þjóðfélög sem komast á hátt menningarstig, þar sem auður og velsæld helst í hendur við bókiðn og aðrar menntir, en enda samt í hruni og falli. Þegar við erum á unga aldri finnst okkur sem manninum hljóti alltaf að miða framávið, að þróunin verði jákvæðí í framfaraátt. En því miður er lærdómur sögurnnar ekki sá. Þvert á móti hafa menningarskeið tekið enda. Margvíslegar framfarir hafa hrunið niður í djúp gleymskunnar. Frægast slíkra dæma eru endalok rómverska heimsveldisins, þjóðfélag velmegunar og íburðar sem hrundi eins og spilaborg.
Að ýmsu leyti minnir samfélag forfeðra okkar á tólftu og þrettándu öld á hið sama; hér var að hluta til myndugt samfélag sem sem menntir og menning voru í hávegum, þar sem auður var í garði og alþjóðlegri straumar blésu afli í heimaræktaðan arfinn.
En maðurinn kunni sér ekki hóf. Hann vildi meira, ofirfðin, drambið og græðgin varð samfélaginu að falli – öfund og hatur. Þetta eru sígild viðfangsefni okkar dauðlegra manna. Ekki vantaði það að höfðingjarnir sem hátt lifðu á þrettándu öld væru minntir á ófullkomnleika mannsins. Þannisegir til dæmis í þrettándu aldar prédikun fyrir jól:
Á það minntum vér, bræður mínir, að þaðan af, er nú nálgast burðartíð Drottins, bjuggumst vér um alla jólaföstuna við henni sem við brúðkauplegri og himneskri samkundu, svo að vér séum skírir allrar lostasemi og skrýddir góðum verkum og gefum fé aumum mönnum og rekum ólund eða hatur úr hjörtum vorum sem eitur væri.[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][1]
Reyndar er það símannleg reynsla hversu neikvætt hugarfar, þungur hugur, dregur mátt úr mönnum, skemmir fyrir einstaklingum og samfélagi. Um árabil stundaði ég það með fjölskyldu minni að fara í kaffi á þjóðhátíðardaginn sautjánda júní hjá Hjálpræðishernum í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir utan einstaka viðmótshlýju og sölkuvölkulega stemmningu í húsi hersins þá vakti sérstaka athygli setning úr helgri bók sem letruð var risastórum stöfum á vegg samkomusalarins: Glatt hjarta veitir góða heilsubót – en dapurt geð skrælir beinin!
Sú er líka niðurstaða nútíma læknisvísinda að þunglyndi er hættulegt – neikvæðar tilfinningar eru beinlínis líkamlega heilsuskaðlegar – dapurt geð skrælir beinin!
Það má færa fyrir því rök að hnignun íslenska menningarsamfélagsins og fall eigi rætur sínar í neikvæðum tilfinningum. Höfðingjarnir sem höfðu farið fram af græðgi og óhófi kölluðu fram það versta í mótstöðumönnum sínum: öfund og hatur. Þær hvatir réðu um refsinguna, hefndina.
Samfélög byggja á því sem hvert hérað, land og þjóð á sameiginlegt. Því fleira sem sameinar okkur þeim mun sterkara er samfélagið. Við eigum sameiginlega tungu, sameiginlega menningu. Íbúarnir sem búa í landinu hafa síðan fjölda torga, félaga, stofnana og samtaka, sem sameina þá. Á undanförnum árum og áratugum hefur sumt af því sem sameinaði okkur sem þjóð og héraðsbúa, horfið eða þokast til hliðar. Áður átti þjóðin til dæmis sameiginlegt ríkisútvarp sem sameinaði þjóðina. Frelsið í útvarpsrekstri var keypt þeim kostnaði að þetta sameiginlega torg hvarf. Sams konar þróun hefur orðið í byggðum landsins kaupfélög, pósthús, símstöðvar – sem áður voru sameinandi stofnanir heyra til horfinni tíð. Í vissum skilningi hefur þessi þróun sundrað okkur sem þjóð. Þessi hlið þjóðfélagsþróunar er að minnsta kosti verðugt umhugsunarefni.
Stundum verður þjóðfélagsþróun hraðstiga án þess að nokkrir verði í rauninni varir við hana, í öðrum tilvikum er um meðvitaða stefnumörkun að ræða. Heilbrigt er að tekist sé á um mismunandi sjónarmið um hvert beri að stefna. En hér skilur á milli feigs og ófeigs hvort samfélögin eru tilbúin til að takast á um málin að siðaðra manna hætti.
Reynsla sögunnar er að samfélög eru viðkvæm. Það tekur ekki endilega langan tíma fyrir menningarsamfélag að hrynja. Einstaklingarnir og hóparnir þurfa að vanda sig í samskiptum ef ekki á að fara illa. Við þurfum að hafa aðgang að hvert öðru um síðsamleg torg þar sem einn hópurinn treður ekki öðrum um tær. Við þurfum að rækja lýðræðissamfélagið. Til þess þarf fólk að temja sér kurteisi og virðingu fyrir þeim sem hafa aðra skoðun – eru á öndverðum meiði.
Auðvitað má sífellt finna sök hjá einhverjum öðrum um það sem miður fer í þjóðfélaginu. Við höfum lent illa í kreppu og óáran og undir niðri þrumir heift og reiði, þungur hugur og menn láta stjórnast af hatri.
Þetta eru engin ný sannindi. Í Konungs skuggsjá frá þrettándu öld segir að „ef áóaran verður á fólkinu eða á siðum landsins, þá standa þar miklu stærstir skaðar af því þá má ei kaupa af öðrum löndum með fé, hvorki siðu né mannvit, ef það týnist eða spillist, er áður var í landinu.“[2]
Oft er erfitt að gera greinarmun á réttlátri reiði og óviðráðanlegu hatri. Réttlát reiði á að fá útrás eftir til þess löglegum og bærum leiðum – á málþingi og með málsóknum ef lögmætar ástæður eru til. Sú hætta er hins vegar fyrir hendi að stigmögnun hatursins verði að óviðráðánlegu báli, og það er alveg ljóst að orðasukkið í opinberri umræðu, illyrði og uppnefni, bölv og bölmóður er eldiviður á þann bálköst. Og það er reynsla sögunnar að þegar farið er kasta fólkinu á bálið, þá verða alltaf saklausir fórnarlömb. Mér finnst eins og orðaval í opinberri umræðu, hvort sem er á alþingi eða í fjölmiðlum, hafi farið úr öllum böndum – og séu í sjálfu sér orðið okkur sem samfélagi stórhættulegt. Að ekki sé nú um að tala nafnlausan óhroða í bloggheimum, þar sem ærumeiðingar og mannfjandsamleg ummæli, renna eftir leiðslunum einsog skólp frá milljónaborgum. Er það sú orðrræða sem sæmir því samfélagi sem við viljum halda í heiðri á Íslandi í byrjun 21. aldar?
Við myndum saman þetta þjóðfélag, þetta samfélag, og öll berum við ábyrgð. Við berum ábyrgð af óförum þess í fortíðinni og enn þyngri ábyrgð á því sem fram fer fyrir augum okkar – með athöfnum okkar eða athafnaleysi. En aftur minni ég á lærdóm sögunnar, hversu viðkvæm samfélögin eru í gerðinni. Við höfum komið okkur saman um ákveðnar leikreglur, málaferli og stofnanir, til að komast að hugsanlegri sekt manna og ákvarða þeim refsingar.
En þegar hatrið tekur völdin, þegar heiftin ræður fyrirsögnunum, þá eru aðrir umboðslausir að taka sér vald til að dæma og til að refsa. Við skulum hafa það í huga hversu oft er verið að refsa saklausu fólki þegar stóryrði eru notuð um nafngreinda menn og meinta sekt þeirra – þetta er nútíma gapastokkur, það er verið að stegla menn daglega fyrir augum okkar og krossfesta þá. Einhverjir þeirra hljóta að vera saklausir.
Með stóryrðun og hatrinu, með refsigleðinni sem orðin er svo áberandi í umræðunni, er verið að vega að samfélaginu. Þetta er ekki lengur jafn öruggt þjóðfélag. Og aftur minni ég á lærdóm sögunnar, hversu viðkæmar stoðir þess eru, hversu mörg samfélög hafa fallið af sömu ástæðum.
Á hinn bóginn má hafa í huga að okkur sem einstaklingum vegnar betur í lífinu með því að tileinka okkur jákvætt hugarfar. Auðvitað er það ekki alltaf auðvelt. Allir hafa tilhneygingu til þunglyndis og bölsýni. En með sama hætti og stigmögnun neikvæðninnar er þjóðhættuleg, þá er stigmögnun hins jákvæða hugar vænleg til uppbyggingar. Hér er ekki verið að mæla því bót að við gerumst einhhverjar geðlurður og gleymum vandamálum okkar, yfirsjónum og jafnvel glæpum, nei, en við höfum farvegi fyrir meðhöndlun þeirra mála. Íslendingar hafa þörf fyrir að fólk, hvar í flokki sem það stendur, vinni að uppbyggingu, vinni að sköpun, og til þess þarf jákvætt hugarfar. Auk þess er það betra fyrir heilsu manna, því að dapurt geð skrælir beinin, meðan glatt hjarta er góð heilsubót!
[1] Íslensk hómilíubók 1993: 300, 301. Hér er fært dálítið til nútíðarmáls og nokkrar úrfellingar eru í texta.
[2] Konungs skuggsjá: 100-101.
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]