Falleg og jákvæð bók

Bókin Bragð í baráttunni hefur vakið mikla athygli hérlendis enda margföld metsölubók um heim allan. Í umfjöllun Ingibjargar Gunnarsdóttur, doktors í næringafræði við Háskóla Íslands, sem birtist nýverið í tímariti hjúkrunafræðinga segir m.a. að bókin sé í senn lærdómsrit, heilsuhvati og uppskriftabók. Það sem gladdi Ingibjörgu einna mest og vakti áhuga hennar er að í bókinni er lögð áhersla á matarræði sem nýst getur í baráttunni gegn krabbameini í staðinn fyrir að einblína á fæðutegundir sem fólk ætti að forðast. Umfjöllun Ingibjargar má lesa hér.

INNskráning

Nýskráning